Sjáðu hvernig þú strýtur merkin á í þessu
myndbandi.
Svona hannar þú þín eigin straumerki
Straumerki með eigin fyrirtækjamerki eru frábær lausn, ef þú vilt setja lógóið á föt og annað efni. Til að gera straumerki, þarftu að vera með fyrirtækja lógóið á tölvunni, svo þú getir hlaðið því uppá síðunni.
Auðveldasta lausnin: Settu lógóið þitt inn undir "myndir" eða "bakgrunnur". Þú getur prófað þig áfram, og séð hvort þetta líti vel út, áður en þú pantar.
Ef þú vilt fleiri möguleika og valkosti, þá geturð valið "Straumerki í eigin hönnun" hér fyrir ofan. Settu inn lógóið undir "myndir". Hér getur þú auðveldlega hannað þitt eigið merki, sett inn lógó og fært það til á merkinu. Þú getur líka valið að láta skera merkið út, meðfram lógóinu. Þú getur líka valið bakgrunnslit. Þú setur bara inn hex litakóðann, eða velur lit. Útskorið straumerki er þegar við skerum meðfram lógóinu. T.d. ef lógóið þitt er stjarna, myndu straumerkið vera í laginu eins og stjarna.
Þú velur stærðina á strumerkjunum. Ef þú vilt panta straumerki í mismunandi stærðum, geturðu lagt fyrstu stærðina í körfuna og farið aftur inná síðuna og gert næstu stærð. Ef þú vilt endurpanta straumerkin þín, geturðu gert það beint á síðunni. Þú skráir þig inn neðst á síðunni, og svo ertu alveg viss um að merkin verði nákvæmlega eins og síðast.
Öskudagsbúningar, teikningar og fleira
Þó að við köllum þessa voru "straumerki með eigin lógó" þarf það ekkert endilega að vera lógó, sem þú hleður upp. Straumerkin er hægt að nota á ýmsan hátt og við margar aðstæður. Ef þú ert með góða hugmynd - þá er bara að henda sér út í það.
Settu inn teikningu og gerðu persónulegt straumerki. Það getur t.d. verið teikning sem barnið þitt gerði, eða falleg mynd sem þú hefur málað. Passaðu að myndin sé í skýrum litum og vel skönnuð.
Skemmtileg straumerki fyrir veisluna. Ertu að undirbúa steggjun, gæsun, brúðkaup eða afmælispartý. Gerðu til dæmis boli með skemmtilegri athugasemd "Hjálp, ég er að fara að gifta mig", eða eitthvað annað skemmtilegt eða hátíðlegt. Þú getur jafnvel sett inn ljósmynd, i staðinn fyrir lógó. Það eru ótal möguleikar á síðunni, svo þú getur hannað straumerkið alveg eins og þú vilt.
"Straumerki með eigin lógó" er líka hægt að nota á Öskudagsbúnina. Sjáðu t.d. Atom Albert lógóið á myndinni hér fyrir ofan. Straumerkið hefur verið prentað í mörgum stærðum, og sett á hárband, bol og skykkju. kan også bruges til fastelavnskostumer. Se fx det flotte logo, der er sat på en T-shirt, som "Atom Albert".
Straumerki eru auðveld og endingargóð lausn
Merktu vinnufötin þín, svo að fyrirtækja lógóið þitt sé sjáanlegt.
Verðið á straumerkjunum er mjög gott, og straumerkin borga sig þegar fötin týnast ekki.
Það er líka hægt að setja nafn undir lógóið. Þannig verða vinnufötin persónulegri og viðskiptavinirnir sjá hvað starfsfólkið heitir.
Klikkaðu
hér, til að finna straumerki til að merkja barnaföt, og fyrir merkingu á elliheimilum.