Bruggar þú safa, snaps, bjór eða vín? Þá geturðu hannað þína eigin flöskulímmiða og sett punktinn yfir i-ið. Miðarnir eru mattir og þykkir, og þola vatn og geta staðið í ísskáp.
Láttu prenta þá með þinni eigin hönnun/mynd og settu á flöskurnar í brúðkaupinu, afmælinu eða skírninni. Veislan verður ennþá persónulegri og þú getur notað flöskurnar sem hluta af skreytingunum.
Þú getur notað eina af hönnununum frá okkur á síðunni, eða sett inn þína eigin hönnun og stjórnað alveg sjálf/ur hvernig flöskumiðarnir líta út.
Flöskumiðarnir frá okkur eru í sterkum, möttum gæðum, og geta setið á flöskunum í langan tíma án þess að fölna eða detta af. Þeir eru vatnsheldir, en þola EKKI uppþvottavél.
Ef þú setur flöskumiða á heimagerðu drykkina, er auðveldara að þekkja flöskurnar í sundur. Ef þú vilt hafa innihaldslýsingu á flöskunni, geturðu gert 2 miða, og sett miða aftaná flöskuna með innihaldslýsingunni.
Skoðaðu líka hina
miðana okkar.
Staðreyndir
- Notaðu eina af okkar hönnunum, eða búðu til þína eigin.
- Athugið að gagnsæir flöskumiðar eru einungis fáanlegir með svörtum texta, og ekki eigin hönnun.
- Settu flöskumiðann á heimabruggið eða skiptu út miðanum sem er á.
- Fáðu glæsilegar bjórflöskur og vínflöskur með persónulegum flöskumiða.
- Hannaðu þína eigin flöskumiða fyrir næstu veislu og settu mynd af heiðursgestinum á flöskurnar.
- Heimagerður snaps með persónulegum miða er frábær gjöf.
- Hannaðu flöskumiðana svo að þeir passi við innihaldið. Ef þú hefur gert berjasaft, settu þá til dæmis mynd af ferskum berjum á miðann.
- Ef þú selur heimagert vín eða snaps, mundu þá að kynna þér reglur varðandi merkingu á slíku.
- Flöskumiðana er auðvelt að fjarlægja aftur, svo hægt sé að endurnýta flöskurnar.
- Miðarnir eru vatnsheldir.